Frábær hugmynd!

Sjónvarpsþættir Hugmyndasmiða á KrakkaRÚV.

Viltu læra að hugsa skapandi og fá hugmyndir?

Ertu kannski alltaf að fá hugmyndir og langar að læra að koma þeim í framkvæmd?

Í þessum þáttum segja þau Birta og Jean frá því hvernig þú getur orðið hugmyndasmiður. Hugmyndasmiður er sá sem fær hugmynd og hefur hugrekki og kraft til að láta hana verða að veruleika. Þau spjalla við íslenska hugmyndasmiði um uppfinningarnar þeirra og segja þér allt um það hvers vegna hugmyndasmiðir eru mikilvægir fyrir bæði nútíð og framtíð.

Handritshöfundar: Eva Rún Þorgeirsdóttir og Sævar Helgi Bragason
Framleiðsla og leikstjórn: Eva Rún Þorgeirsdóttir
Kvikmyndataka og klipping: Elvar Örn Egilsson
Grafík: Ninna Margrét Þórarinsdóttir
Yfirframleiðandi: Svava Björk Ólafsdóttir
Umsjón þátta: Birta Steinunn Sunnu Ægisdóttir og Jean Daníel Seyo Sonde